Í vikunni afhenti Orkan Krabbameinsfélaginu afrakstur söfnunar Orkunnar til styrktar Bleiku slaufunnar (Bleika slaufan)
Í ár söfnuðust samtals 1.000.000 kr. Við erum endalaust stolt af tólf ára farsælu samstarfi við þetta verðuga málefni og erum hvergi nærri hætt.
Upphæðin safnaðist í með Ofurdegi þann 12. Október ásamt lyklasamstarfinu með Orkulykil Bleiku slaufunnar.
Þær Sigríður Sólan, Halla Þorvaldsdóttir og Kolbrún Silja frá Krabbameinsfélaginu komu til okkar og tóku á móti viðurkenningarskjali og blómvendi frá okkur.
Við viljum þakka öllum viðskiptavinum Orkunnar sem sýndu lit og tóku þátt í stuðningnum við þennan góða málstað.
Menn.is óskar Krabbameinsfélaginu til hamingju með styrkinn – vel gert hjá ORKUNNI!