Bryant og Lauren Swenson fluttu með sig og börnin sín þrjú frá Bandaríkjunum til Keníu fyrir þrem árum síðan til að opna CrossFit stöð.
30. nóvember lentu þau í fyrsta sinn í einhverju slæmu, en það var á skala sem hræddi líftóruna úr þeim – því að sveðjugengi náði þeim næstum því.
Þau komu að hvítum bíl sem gengið var að ræna, en þegar þau komu upp að bílnum þá snéri sveðjugengið sér að þeim.
Bryant rétt svo náði að skrúfa upp rúðuna með því að bakka fyrst bílnum aðeins, en svo brunaði hann af stað til að sleppa undan þeim.
Gengið elti þau alveg þar til að lögreglan kom á svæðið og þetta endaði í byssubardaga milli lögreglu og glæpamanna.
Árás sveðjugengisins náðist á myndband: