Emily Prager og Catherine Schaefer frá University of Minnesota og Rachel E. White frá Hamilton College gerðu rannsókn á athygli barna.
Þau fengu 4-6 ára börn til að gera leiðinleg verkefni í 10 mínútur. Ef þeim leiddist máttu þau fara leika sér í iPad.
180 krakkar voru sett í þrjá hópa:
– Hópur 1 átti að gera verkefnin venjulega, það er að segja að hugsa verkefnin út frá sjálfum sér.
– Hópur 2 átti að hugsa um sig í þriðju persónu (Er Hanna dugleg?) á meðan þau voru að leysa verkefnin.
– Og allir í hóp 3 áttu að ímynda sér að þau væru ofurhetjur á meðan þau voru að leysa verkefnin.
Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að krakkarnir sem ímynduðu sér að þau væru ofurhetjur unnu lengur og harðar við verkefnin og leituðu ekki eins mikið í iPadinn.
Þá er bara spurning hvort þetta virki fyrir fullorðna líka? Eitthvað segir mér að þetta virki vel á alla!