Auglýsing

Rannsókn sýnir að fyndnir karlmenn eru BETRI í rúminu!

Frábærar fréttir fyrir húmoristana sem eru að lesa þetta: Samkvæmt vísindunum ert ÞÚ betri í bólinu en meðaljóninn í kringum þig.

Í rannsókn frá Albany Háskólanum í New York kemur fram að konur eru líklegri til þess að vilja eiga samræði við mann sem fær hana til að hlæja.

Hún er auk þess líklegri til þess að njóta þess oftar, vilja njóta þess enn oftar og njóta þess meira líkamlega.

Konur eru líklegri til þess að finnast þær öruggar og skuldbundnar karlmanni ef hann veit nákvæmlega hvernig hann getur fengið hana til að hlæja.

Í stuttu máli: Fyndnir karlmenn = bestu makarnir.

Þessi rannsókn náði hins vegar aðeins til nemenda í háskólum, svo hún er kannski ekki hárnákvæm fyrir allt kvenfólk í heild sinni.

En allar konur vilja að sjálfsögðu hlæja og það er fátt kynþokkafyllra en karlmaður sem veit nákvæmlega hvernig á að fá þig til þess að skella upp úr!

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing