Dashik Freckle er frá Rússlandi og er með 187 þúsund fylgjendur á Instagram. Hún líkitst Disney prinsessunni Rapunzel sífellt meira eftir því sem hárið síkkar.
Hún hefur verið að safna hári í 13 ár. Hárið nær niður á kálfa – en hún ætlar ekki að hætta fyrr en það nær niður á tær.
„Þegar ég hef safnað hárinu niður á tær – mun ég klippa það og gefa það til að búa til hárkollur.“ segir Dashik, sem er greinilega með hugarfarið á réttum stað – líkt og hárið!