Auglýsing

Sálstofan er með MIKILVÆG skilaboð til jólasveina – Öll börn eru góð börn!

Sálstofan er með einstaklega mikilvæg skilaboð til allra jólasveina sem þau sendu frá sér í þessu opna bréfi á Facebook.

Aðventan getur nefnilega verið skrítinn tími fyrir börn út af ýmsum ástæðum og því er mikilvægt að muna að öll börn eru góð börn.

Opið bréf Sálstofunnar til jólasveinanna:

Kæru jólasveinar. Nú fer að styttast í að þið komið til byggða með glaðning í skóinn og því langar okkur að koma á framfæri hugleiðingum okkar.

Aðventan getur verið skrítinn tími fyrir börn; sum eru yfir sig spennt, önnur eru óróleg þegar rútínan fer úr skorðum og enn önnur kvíða fyrir þessum tíma. Á þessum skrítna tíma eruð þið einmitt að gefa börnum í skóinn og vorum við að velta fyrir okkur hver viðmiðin væru hjá ykkur varðandi hvort börn fengju í skóinn – eða hvort það væru viðmið?

Stundum höfum við heyrt talað um að börn þurfi að vera góð til að fá í skóinn. En málið er að við höfum hitt svakalega mörg börn og við vitum að öll börn eru góð. Þar með ættu öll börn að fá alltaf í skóinn ekki satt?

Ef þið ætlið að nota einhverskonar viðmið viljum við minna ykkur á að hafa þau þá skýr og sanngjörn þannig að börnin hafi tækifæri til standast væntingar ykkar. Hvernig væri t.d. að hafa viðmið um að börn fari í háttinn þegar þeim er sagt að gera það frekar en að fara í háttinn á einhverjum fyrir fram ákveðnum tíma? Er sanngjarnt að gefa ekki í skóinn ef barn missir stjórn á skapinu sínu í öllum þeim asa og spenningi sem getur fylgt þessum árstíma? Er sanngjarnt að barn fái ekki í skóinn ef það gleymir sér óvart, aðeins?

Foreldrar gleyma sér nefnilega stundum og fara að nota ykkur jólasveinana sem einhverskonar Grýlu á aðventunni (og við vitum að þið eruð ekkert líkir móður ykkar). Þá geta foreldrar t.d. sagt börnunum að jólasveinninn fylgist með hverju spori – og þá sérstaklega hverju feilspori – og þá komi mögulega ekkert í skóinn. Bara það að halda að þið fylgist með hverjum andardrætti barnanna getur skapa kvíða og spennu sem leiðir til erfiðrar hegðunar.

Ef foreldrar lesa þessi skilaboð þá minnum við þá líka á það að það er miklu skemmtilegra og ánægjulegra að skapa aðstæður sem hjálpa börnum að sýna æskilega hegðun, að koma vel fram við aðra og gera hluti sem láta þeim líða vel. Góðu börnin okkar geta nefnilega gleymt sér og sýnt af sér óæskilega hegðun og þá er nú gott að hafa foreldra sem minna á hver æskilega hegðunin er – og auðvitað hrósa börnunum þegar sú hegðun er sýnd. Og kannski er allt í lagi í þeim tilvikum að nefna að slík hegðun myndi örugglega gleðja jólasveinana?

Og eitt enn fyrst við erum að skrifa ykkur bréf. Ekki ruglast í skógjöfunum, foreldrar mega gefa allskonar í jólagjafir en í skóinn er gott að jólasveinninn gefi öllum börnum svipað svo börnin haldi nú ekki að þið gerið upp á milli.

Við höfum ofurtrú á ykkur kæru jólasveinar – gleðilega sleðaferð til byggða

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing