Samkvæmt rannsókn Pew rannsóknarmiðstöðvarinnar þá eru karlar eru líklegri til að búa heima hjá foreldrum sínum lengur en konur.
Milljónir ungra Bandaríkjamanna búa í foreldrahúsum.
Fjöldi þeirra sem eru á aldrinum 18-31 árs sem búa í foreldrahúsum er nú 36%. Það er hæsta prósenta sem sést hefur í fjóra áratugi.
Alls búa 56% ungmenna á aldrinum 18-24 ára í foreldrahúsum og 16% þeirra sem eru á aldrinum 25-31 árs. Munurinn á kynjunum er sá að 40% karla búa heima – á meðan 32% kvenna gera það.
Kenningar um af hverju munurinn stafar ganga út á að fleiri konur á þessu aldursbili séu giftar (því þær eru almennt fyrri til að ganga í hjónaband) – að karlar fái meira frelsi í foreldrahúsum en konur – og að konum gangi almennt betur í menntakerfinu og finni því betri vinnur til að borga fyrir eigið húsnæði.