Þegar farþegar skemmtiferðaskipsins Akademik Shokalskiy sigldu framhjá Wrangel-eyju, sem er norður af austurodda Síberíu, sáu þau eitthvað magnað. Í fyrstu leit það út eins og kindahjörð en við nánari skoðun kom í ljós að þetta voru ísbirnir.
Samkvæmt Siberian Times höfðu 230 ísbirnir safnast saman í fjörunni til að gæða sér á stórum hvalreka. Þetta kallar maður veislu!