Simmi og Villa taka vel á móti gestum Shake&Pizza þar sem þú getur gætt þér á fjórðu bestu pizzu í heimi.
Shake&Pizza kom sér svo sannarlega á kortið þegar staðurinnfékk 4. sætið á Pizza Expó í Las Vegas. Og vann þar með titilinn 4. besta pizza í heimi.
Af þessu tilefni hefur Shake&Pizza ákveðið að verðlauna alla þá sem lenda í 4. sæti. Það er sama í hverju það er.
Simmi hefur áður verðlaunað efnilega einstaklinga sem hrept hafa fjórða sætið í gegnum tíðina. Síðustu vinningshafar voru þau:
Bríet Lilja sem er í U-18 landsliðshóp Íslands í Körfubolta sem lenti í 4. sæti í Bosníu síðasta sumar, sem er frábær árangur.
Hins vegar er það Magni Ásgeirsson, sem tók þátt í Rockstar:SuperNova árið 2006 og gerði þjóðina stolta. Hann hafnaði í 4 sæti sem er framúrskarandi árangur.
Ef þú hefur lent í 4. sæti og getur sannað það með mynd og öðrum upplýsingum. Sendu þín afrek á fjordabest@shakepizza.is og hver veit, nema þú fáir verðlaun!