Jack Hoffman er sjö ára piltur – hann glímir við krabbamein.
Jack kynntist leikmanninum Rex Burkhead hjá Nebraska Huskers. Hann tók drengnum opnum örmum – og úr varð að Jeff Jamrog og C.J. Zimmer stjórnendur liðsins ákváðu að fá Jack með á völlinn. Og leyfa honum að spila með.
Úr verður að Jack upplifir draum sem fáir upplifa – að skora snertimark.
Hér íhuga tilfinningalega opnir menn alvarlega að tárast þó ekki nema lítið eitt.