Auglýsing

Stórhættulegt að vera STOPPAÐUR af löggunni á Íslandi – Það gæti endað svona! – MYND

Það er greinilega stórhættulegt að vera stoppaður af löggunni á Íslandi – það gæti nefnilega endað svona.

Löggan var að mæla á Suðurlandsvegi rétt hjá Bláfjöllum og stoppaði mann fyrir hraðakstur. Þegar hann kom yfir í bíl lögreglunnar þá var keyrt aftan á lögreglubílinn.

Ekið var á lögreglubíl rétt fyrir kl.15 í dag á Suðurlandsvegi við Sandskeið. Málsatvik voru þau að lögreglumenn voru þar við hraðamælingar og höfðu mælt ökumann við hraðakstur og voru að ræða við ökumann í lögreglubifreiðinni er bifreið var ekið aftan á lögreglubifreiðina á töluverðum hraða. Er áreksturinn varð var lögreglubifreiðin kyrrstæð, vel fyrir utan akreinina og ekki inni á akbraut.

Tveir slösuðust við áreksturinn, annar lögreglumannanna og ökumaðurinn sem hafði skömmu áður verið stöðvaður af lögreglu en tveir aðrir fór á slysadeild til skoðunar. Sjúkrabílar og tækjabíll komu á vettvang frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Mennirnir eru ekki alvarlega slasaðir.

Sem betur fer þá slasaðist enginn alvarlega – sem er þvílík heppni miðað við útlitið á bílnum.

Við vonum að þau sem meiddu sig í árekstrinum jafni sig sem allra fyrst.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing