Sum lífsgæði tökum við algjörlega sem sjálfgefnum. Eins og til dæmis það að geta andað fersku andrúmslofti, fengið hreint vatn úr krananum – og Zinger borgara á KFC.
Þær stórfréttir voru nefnilega að berast að vinir okkar í Ameríku – séu nú loks að fá einn af þessum þremur hlutum. Það er reyndar enn ekki íslenska fjallaloftið eða vatnið úr Gvendarbrunni sem þeir geta notið – en nú geta þeir loksins fengið Zinger borgara á KFC.
Við sem höfum notið þess að gæða okkur á þessari krydduðu snilld í áraraðir getum ekki annað en óskað þeim innilega til hamingju.
Njótið heil!