Þær eru margar rannsóknirnar sem hafa bent til þess að súkkulaði sé hreinlega ekki eins svakalega óhollt og margur heldur!
Samkvæmt rannsókn sem vefsiðan LadBible greindi frá, þá bendir þvert á móti til þess að mjólkur eða dökkt súkkulaði geti minnkað líkurnar á hjartasjúkdómum um allt að 25% og líkurnar á heilablóðfalli um heil 22%.
Þegar rannsóknin er skoðuð nánar má sjá að tvö súkkulaði stykki á dag eru magnið sem þú þarft að vera að borða til að minnka líkurnar á bæði hjartasjúkdómum og heilablóðföllum.
Í rannsókninni er einnig réttilega bent á að það að borða svona mikið súkkulaði á dag getur líka haft slæm áhrif á heilsuna. Sykur og kaloríufjöldi og allt það.
Aðstandendur rannsóknarinnar benda einnig á að til að skera 100% úr um það hversu mikið súkkulaði er hollt þurfi langtíma rannsóknir að fara í gang.
Það er vandlifað í þessum heimi!