Bergþór Pálsson sagði frá því í Facebook færslunni hér fyrir neðan að hann skemmti sér konunglega við að gera auglýsinguna fyrir Mottumars í ár.
Eftir að hafa horft á þessa frábæru auglýsingu þá er það mjög skiljanlegt – það hlýtur að hafa verið gaman að búa til þessa snilld!
Mottumars farinn í gang! Af því tilefni var ekkert sérstaklega leiðinlegt að fara í partí í sturtu með 30 geggjuðum strákum (þvílíku kroppunum! ).
Í klefanum var sunginn texti sem Bragi Valdimar setti saman af sinni alkunnu snilld og húmor. „Sumir að fitla á eistunum, húrra húrra!“
Upp með sokkana, kaupum röndóttu mottumars-sokkana og styðjum baráttuna Og deilið að vild!