Íþróttakeppni Ungfrú Ísland 2017 fór fram í World Class Laugum í sumar undir handleiðslu Olgu Helenu Ólafsdóttur þjálfara.
Stúlkurnar höfðu val um að taka þátt og var keppnin þrjár lotur. Eftir stóðu topp 5 og voru úrslitin kynnt á lokakvöldi Ungfrú Ísland þann 26. ágúst síðastliðinn – en það var Hrafnhildur Arnardóttir sem fór með sigur af hólmi!
Myndband frá keppninni má sjá hér að neðan.