Fílar eru einstaklega gáfuð og tilfinninganæm dýr, sem þurfa ekki mikið ónæði eða áreiti til að reiðast. Og þegar þeir reiðast er eins gott að vera ekki í vegi þeirra. Þessi fíll var hluti af skrúðgöngu á Indlandi og ákvað hann skyndilega að nóg væri komið, með svakalegum afleiðingum. Ekki var tilkynnt um nein alvarleg meiðsl á fólki, en þess ber að geta á árlega deyja rétt rúmlega 300 manns eftir viðskipti sín við fíla.
Þetta kennir okkur mannfólkinu að vera ekkert að halda villtum dýrum nauðugum. Sérstaklega ekki þessum af stærri gerðinni.