Uppistandarinn Helgi Steinar Gunnlaugsson lenti í sérstöku atviki á Facebook. Hann hélt uppistand fyrir SJálfstæðisflokkinn – birti myndbandið á Facebook – og var bara reportaður!
Hann segir þetta um málið:
Maður er ekki sannur uppistandari á Íslandi fyrr en Sjálfstæðisflokkurinn reportar þig á Facebook fyrir að gera grín að þeim
…og ég sem hélt að kínverski kommúnistaflokkurinn væri húmorslaus
Ég fékk viðvörun frá Facebook sem sagði: „If you continue to post content that infringes or violates the law, you will be permanently blocked from Facebook“.
Ég braut engin lög og allir sem voru þarna hlógu og skemmtu sér. Hins vegar ef einhverjir hörundsárir einstaklingar vilja halda því fram og tilkynna mig þá verður bara að hafa það! Ég myndi frekar vera hent út af Facebook og settur í ævilangt bann en að leyfa öðrum að ákveða hvað ég má og má ekki segja!!!!
Takk fyrir mig!