Eva Riley Stonestreet birti myndband á Facebook síðu sinni þar sem hún er með ákall til fjölmiðla að fá úrlausn í máli þar sem maður virðir ekki nálgunarbann við hana. Líkt og sjá má HÉR
Í dag birtist á mbl.is – skjáskot af skilaboðum sem maðurinn hafði sent móður Evu í nóvember síðastliðnum.
„Mér finnst ég alls ekki örugg. Þegar lögreglan sagði að hún myndi handtaka hann strax þá gaf það mér öryggi. En það er alveg farið núna. Held reyndar að íslenska þjóðin hafi hjálpað mér meira heldur en lögreglan,“ segir hún í samtali við mbl.is og á þar við þá umræðu sem færsla hennar og umfjöllun fjölmiðla um málið hefur vakið.