Nú stendur yfir Kringlukast frá 4-8 maí – og er þá afsláttur í boði hjá verslunum Kringlunnar.
Eirberg er þar engin undantekning – en verslunin er með í boði hina mögnuðu GaitLine™ skó sem hafa frábær áhrif á stoðkerfið og hafa farið sigurför um Norðurlöndin.
Ástæða fyrir velgengni GaitLine er sú að þeir eru hannaðir til að leiðrétta og bæta göngulag. Þeir bæta hreyfimynstur og þungaburð í standandi stöðu og í göngu. Þeir stuðla að náttúrulegri stöðu fóta og auka þannig jafnvægi en það leiðir til bættrar hreyfikeðju og aukinnar samhverfu í líkamanum.
Skekkja í ökklum inn á við leiðir til aukins álags á miðlægan flöt fótarins, iljarbogans. Rangt álag á fæti vekur röng viðbrögð upp hreyfikeðjuna sem leiðir af sér truflanir í vöðva- og stoðkerfi líkamans.
Sérstaða GaitLine™ er nylonspelka („Sensory Gait Line“) í skósólanum en liggur hún meðfram langásnum frá hæl og að tá. Hún aðstoðar fótinn við að ná betra jafnvægi, bætir þungadreifingu fótarins í skónum og virkjar rétt hreyfimynstur í líkamanum í standandi stöðu og í göngu.
Verslanir Eirbergs eru að Stórhöfða 25 og í Kringlunni, 1. hæð – eins er hægt að versla í vefverslun Eirbergs