Það verður toppslagur þegar Manchester City og Liverpool mætast á næsta nú síðdegis á sunnudaginn, 10 nóvember, klukkan 16:30 á Anfield Road.
Sem stendur er Manchester City í 2. sæti deildarinnar – og Liverpool sem hafa verið næsta óstöðvandi undanfarið sitja í því fyrsta.
Liverpool sem hefur aðeins gert eitt jafntefli og unnið rest í deild – mætir City sem hafa átt óvænt misstig – líkt og tap gegn Wolves á heimavelli.
Þrátt fyrir allt eru það Englandsmeistararnir sem þykja sigurstranglegri á Anfield. Samkvæmt spásíðunni Betsson þá eru Man City menn líklegri til að hafa leikinn – með 2,60 í stuðul, á meðan Liverpool lúrir með 2,65.
Leikurinn gæti haft mikið að segja með toppslaginn – því þetta er svokallaður 6 stiga leikur. Eins má segja að hann geti haft sálfræðilegar afleiðingar.
Hið minnsta munu áhangendur liðanna sitja sem fastast yfir þessum toppslag – og ljóst að ekkert verður gefið eftir!