Nú líður að útgáfu á leiknum Battlefield V. – Forsala er hafin HÉR – en leikurinn er væntanlegur 20. nóvember.
Já eftir langa bið er Battlefield V að koma út. Líkt og sjá má í treilernum hér að neðan – þá er á leiðinni leikur sem þenur út allar taugar.
Í Battlefield V tekurðu þátt í í stórbrotnustu orrustu mannkynssögunnar. Að þessu sinni fer Battlefield serían aftur í ræturnar og varpar einstöku ljósi á seinni heimsstyrjöldina.
Spilaðu á móti öðrum í einstökum bardögum á netinu í spilunarmöguleikum á borð við Grand Operations þar sem bardaginn fer fram á nokkrum vígvöllum og í Combined Arms þar sem leikmenn þurfa að snúa bökum saman í öflugri co-op spilun eða upplifðu dramatíkina sem fylgdi stríðinu í svokölluðum War Stories sem keyra áfram söguþráð leiksins.
Sama hvert valið er, þá færðu tækifæri á að berjast á óvæntum stöðum um allan heim í flottasta Battlefield leiknum hingað til.