UFC bardagamaðurinn Mark Hunt er búinn að vera í smá stríði við Dana White sem er forseti UFC. Þetta stríð er búið að vera í gangi í meira en ár og Hunt átti núna í nóvember að berjast í Sydney en hann fékk þær fréttir að hann hafi verið dreginn úr þessum bardaga.
Hann deildi færslu á Facebook þar sem hann var með ansi grimm skilaboð til Dana White og UFC.