Dagblaðið Verdens Gang, stærsta dagblað Noregs, vildi fá svar við afar mikilvægri spurningu. Hver er uppáhalds Cola drykkur Norðmanna.
Af þessu tilefni framkvæmdi blaðið afar vísindlega en þó lauflétta rannsókn til að finna út hið rétta svar.
Eftir að hafa fengið óháða dómnefnd í verkefnið – sem setti upp blinda rannsókn – þar sem þátttakendur vissu ekki hvaða drykk þeir fengu – en áttu að meta þá út frá bragðinu einu saman – þá varð niðurstaðan nokkuð ótvíræð.
Bæði í karla- og kvennaflokki – og einnig í öllum aldurshópum – þá var það Pepsi Max sem hlaut titilinn sem besta gos Noregs.
Nú er bara spurning að framkvæma þessa tilraun hér á landi?