Rusell Brand leggur sig allan fram um að deila þeim leiðum sem hann hefur fundið til að losna undan því að vera algjör hálfviti, eins og hann orðar það sjálfur.
Hann var ekki góður maður að eigin sögn og er langt frá því að vera fullkominn í dag – en hann hefur fundið leiðir sem hjálpa honum að smám saman verða betri maður, betri í dag en hann var í gær.
Hér ræðir hann um leið sem við getum nýtt okkur til að losna undan græðgi á öllum sviðum. Þetta er örugg lausn, en það er erfitt að feta hana.