Netflix ætlar að fagna 1.apríl með því að streyma Arrested Development leikaranum Will Arnett í beinni útsendingu.
Dagskrásniðið verður afar furðulegt því Will mun ekki gera annað en að koma með athugasemdir um sitt nánasta umhverfi, kannski verður áhugaverður kaffibolli eða pottaplanta á settinu sem honum dettur eitthvað sniðugt í hug að segja um.
Mér dettur allavega ekkert sniðugt í hug, en ég er nú ekki heimsfrægur grínari.
Ef ég þekki manninn rétt verður þetta sprenghlægilegt.