Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi hefur sent frá sér skemmtilegt kosningamyndband fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Sjáðu myndbandið hér að neðan.
Sjá einnig: Samfylkingin stekkur á Eurovision-vagninn í kosningamyndbandi ársins hingað til
Myndbandið svipar til kökugerðarmyndbands Bjarna Benediktssonar sem vakti gríðarlega athygli fyrir kosningarnar í 2016. Ármann hefur þó greinilega ekki sömu hæfileika og Bjarni þegar kemur að því að setja saman góða köku.
Það er snjallt að búa í Kópavogi
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fer yfir málin.
Posted by Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi on Miðvikudagur, 23. maí 2018