Hljómsveitin Úlfur Úlfur á titillag þriðju þáttaraðar Orðbragðs, sem hefur göngu sína á RÚV sunnudaginn 4. september. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Lagið heitir A-A-A og textanum fer Arnar Freyr í gegnum stafrófið á ansi skemmtilegan hátt. Hann laumar meira að segja kærustunni, tónlistar- og fjölmiðlakonunni Sölku Sól að: „Salka Sól er sætari en sykur.“
Horfðu á myndabandið við lagið hér fyrir neðan.