Auglýsing

Birta fyrsta brotið úr Íslandsþætti Keeping Up With The Kardashians, sjáðu myndbandið

Fyrsta brotið úr Íslandsþætti Keeping Up With The Kardashians hefur verið birt á fréttavef sjónvarpsstöðvarinnar E! (upphrópunarmerkið er í nafninu. Við erum ekki alveg svona spennt). Horfðu á brotið hér fyrir neðan.

Kim og Kourtney Kardashian komu til landsins í apríl ásamt rapparanum Kanye West og hópi vina. Þau ferðuðust um landið ásamt upptökuteymi og vakti ferðin gríðarlega athygli þjóðarinnar.

Ný þáttaröð af Keeping Up With The Kardashians hófst á dögunum og á sunnudaginn er komið að Íslandsferðinni. Kourtney hélt upp á afmælið sitt hér á landi og í brotinu hér fyrir neðan veltir Scott Disick, barnsfaðir hennar og  fyrrverandi kærasti, hvort hann eigi að koma henni á óvart og fljúga til Íslands.

Horfðu á brotið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing