Myndband sem sýnir Bryan Cranston, sem við þekkjum öll úr Breaking Bad og auðvitað Malcolm in the Middle, taka hinn fullkomna „mamma þín“-brandara ferðast hratt um internetið þessa dagana. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Bryan sat fyrir svörum á pallborði Nerd HQ á ráðstefnunni Comic Con og fékk spurningu úr sal frá dreng sem vildi viti hvernig hann kunni við heimabæ sinn á meðan tökur stóðu yfir á Breaking Bad. Þátturinn var tekinn upp í Albuquerque.
Cranston er annálaður húmoristi og hlóð í „mamma þín“-brandara ásamt því að sleppa hljóðnemanum.
Þetta er stórkostlegt. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.