Uppáhaldsleikari Ragnheiðar Söru Sigmundsdóttur er Christian Bale, hún ætlar að eignast sex börn og er ekki búin að borða pönnukökur og beikon í morgunmat í sex ár. Þetta kemur fram í myndbandi sem sýnir dag í lífi hennar. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.
Sjá einnig: Skrifstofumaður skorar á CrossFit-meistara í „pegboard“-keppni, sjáðu myndbandið
Sara lenti í fjórða sæti á heimsleikunum í Crossfit á dögunum. Hún hefur náð ótrúlegum árangri í íþróttinni undanfarin ár og tvisvar hafnað í þriðja sæti á heimsleikunum.
Hún býr nú í Bandaríkjunum og myndbandið sýnir dag í lífi hennar þar, sem hefst að sjálfsögðu á æfingu.