Athafnafólkið Tanja Ýr Ástþórsdóttir og Egill Halldórsson trúlofuðu sig í Mexíkó um helgina. Parið birti myndband á Instagram þar sem Egill sést gabba Tönju í myndatöku á ströndinni og skella sér svo á skeljarnar. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.
Tanja Ýr og Egill eru með þúsundir fylgjendur á samfélagsmiðlum en hægt er að fylgjast með þeim á Instagram, Snapchat, Youtube og á fleiri miðlum.
Tanja Ýr er rekur snyrtivörufyrirtæki ásamt því að vera einn af stofnendum markaðsstofunnar Eylendu, sem sérhæfir sig í markaðssetningu með hjálp áhrifavalda á samfélagsmiðlum. Egill er einn eigenda ferðaþjónustufyrirtækisins Wake Up Reykjavík.