Hvernig myndirðu bregðast við ef 12 ára barn myndi biðja þig um eld? Við fengum snillinginn Össur til að athuga málið og biðja fólk um að kveikja í sígarettunni sinni. Við földum svo myndavél til að fylgjast með. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.
Nútíminn hefur framkvæmt fjölbreyttar samfélagslegar tilraunir í gegnum tíðina sem eiga allar sameiginlegt að vera langt frá því að vera vísindalegar. Við fengum nýbakaðar mæður til að gefa brjóst í Kringlunni og reyndum að gefa fólki pylsur þegar það var á leiðinni í ræktina.
Niðurstöðurnar hafa aldrei verið birtar í ritrýndum fræðigreinum en þær eru samt alltaf áhugaverðar. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan til að sjá hvort fólk var til í að gefa 12 ára barni eld.