Fimleikakonan Simone Biles er ein af skærustu stjörnunum á Ólympíuleikunum í Ríó — ef ekki sú skærasta. Hún er búin að vinna fern gullverðlaun og ein bronsverðlaun og hefur vakið heimsathygli fyrir magnaða hæfileika og styrk.
Simone upplýsti í spjallþætti Ellenar Degeneres á dögunum að hún er skotin í Hollywood-leikaranum Zac Efron. Ellen brást við með því að gefa henni fimleikabúning með áprentuðum andlitsmyndum af Zac.
Í kjölfarið hófu þau að spjalla saman á Twitter
OH MY GOSH I THINK I AM GOING TO PASS OUT OH MY GOSH CRYING! THANK YOU ?
— Simone Biles (@Simone_Biles) July 8, 2016
Þau hittust svo loksins í Ríó og Zac smellti á hana óvæntum kossi sem hefur nú farið eins og eldur í sinu um heimsbyggðina
proof : had to do a retake bc I thought we were taking a picture then he kissed me instead ❤️ pic.twitter.com/rld33V14qe
— Simone Biles (@Simone_Biles) August 16, 2016
Og hún var ansi ánægð: „Kallið mig bara frú Efron!“
?? just call me mrs.efron already @ZacEfron pic.twitter.com/FF4NTgj4MP
— Simone Biles (@Simone_Biles) August 16, 2016