Davíð Lúther Sigurðarson, eigandi framleiðslufyrirtækisins Silent, fer nýstárlega leið við að auglýsa bílinn sinn til sölu. Rapparinn Móri flytur nýjan texta við lagið Atvinnukrimmi og kallar það Atvinnupabbi. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.
Davíð segist í samtali við Nútímann hafa viljað fara óhefðbunda leið í staðinn fyrir að setja bílinn á bílasölu. „Eða reyna á þetta fyrst,“ segir hann léttur.
Ég þurfti ekki að leita langt, fékk Móra til að henda í nýjan texta, taka upp og framleiðslufyrirtækið Silent til að fara á rúntinn með honum.
Móri fer yfir kosti bílsins í laginu en Davíð tekur við tilboðum í netfangið: david@silent.is. „Bíllinn er laus í reynsluakstur hvenar sem er,“ segir hann að lokum.