Auglýsing

Framleiddi stórkostlega auglýsingu til að selja árgerð 1996 af Suzuki Vitara, sjáðu myndbandið

Þegar ísraelski hönnuðurinn Eugene Romanovsky ákvað að selja bílinn sinn var ekki nóg fyrir hann að birta ómerkilega auglýsingu á internetinu. Hann setti saman ótrúlegt myndband sem sýnir bílinn, Suzuki Vitara árgerð 1996, í mögnuðum aðstæðum. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Eugene vann að myndbandinu í frítíma sínum og kom bílnum fyrir í kvikmyndum á borð við Jurassic Park og Mad Max: Fury Road. Áhorfin á auglýsinguna er að skríða í fjórar milljónir.

Myndbandið fór í loftið í apríl og bíllinn er seldur. Eugene segir hins vegar í samtali við fjölmiðla í heimalandi sínu að kaupandinn hafi ekki séð auglýsinguna heldur fallið fyrir honum þegar hann sá hann með eigin augum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing