Stjórnmálaflokkar á Íslandi standa fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík í tilefni af #metoo-byltingunni. Fundurinn hófst klukkan 8.30 og þú getur horft á beina útsendingu hér fyrir neðan.
Markmið fundarins er að ræða næstu skref #metoo innan stjórnmálanna og leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum:
- Hvernig geta félagasamtök eins og stjórnmálaflokkar beitt sér fyrir því að minnka líkur á því að hvers kyns áreiti sé liðið?
- Í hvaða farveg er eðlilegt að mál sem tengjast áreiti fari innan stjórnmálaflokka?
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Opnunarávarp
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs
Metoo í skugga valdsins
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og talskona Metoo í skugga valdsins
Hvar liggja mörkin?
Valdís Ösp Ívarsdóttir, fíknifræðingur
Óskrifaðar reglur í samskiptum
Salvör Nordal, umboðsmaður barna
Sjónarhorn karlmanna sem vilja axla ábygð
Gestur Pálmason, markþjálfi
Metoo – hvað svo
Katrín Björg Ríkharðsdóttir, framkvæmdarstjóri Jafnréttisstofu
Pallborð og umræður
Fundastjóri, Kolbrún Halldórsdóttur fv. ráðherra og forseti Bandalags íslenskra listamanna mun stýra pallborðsumræðum í kjölfar erindanna.
Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar lokar fundinum