Söngkonan Karó sendi frá sér lagið Silhouette í sumar. Lagið er komið með rúmlega 83 þúsund spilanir á Spotify. Kristín Péturs, útsendari Nútímans, hitti Karó á Skólavörðustígnum í dag og spjallaði við hana um tónlistina og væntanlega tónleika á Sónar Reykjavík.
Sjá einnig: Hvað gera Reykjavíkurdætur á Sónar Reykjavík? Ráðleggja fólki að vera með skæting
Sónar Reykjavík hófst í dag og Karó kemur fram á hátíðinni á laugardaginn. Horfðu á viðtalið við Karó hér fyrir ofan.
Karó vann söngkeppni framhaldsskólanna í fyrra fyrir MR en hún flutti lagið Go Slow með Haim. Nýtt lag er væntanlegt á morgun og hún hyggst frumflytja nýtt efni á Sónar Reykjavík.