Atriði úr gömlu áramótaskaupi sem á ansi vel við í dag hefur skotið upp kollinum á Youtube. Atriðið virðist spá fyrir um draum Davíðs Oddssonar að verða forseti Íslands. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.
Meira grín: Ólafur Ragnar og Davíð Oddsson eins og þú hefur aldrei séð þá áður
Davíð gaf kost á sér um helgina og í dag dró Ólafur Ragnar framboð sitt til baka. Í atriðinu úr gamla áramótaskaupinu leikur Örn Árnason ungan Davíð Oddsson sem fær einhvers konar frekjukast: „Það er ég sem á að vera forseti!“ hrópar hann.
Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.