Janúar er veganúar hjá fjölda fólks. Sífellt fleiri Íslendingar borða líka eingöngu veganmat og á Facebook eru til að mynda tæplega 13 þúsund manns í hópi tileinkuðum veganlífsstílnum.
Elísabet Inga, útsendari Nútímans, hatar ekki að fá sér og er því stundum þunn. Hún var því forvitin að vita hvað veganistar borða í þynnkunni og leitaði því að vegan þynnkumat ásamt Bylgju Guðjónsdóttur og Öldu Villiljósi. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.
Elísabet fór á Prepp, Aktu Taktu og Bike Cave og maturinn kom henni mikið á óvart.