Tökum á spennumyndinni Vargur, eftir Börk Sigþórsson, lauk á dögunum. Baltasar Kormákur er einn af framleiðendum myndarinnar sem er væntanleg í haust, ef allt gengur að óskum.
Myndin segir frá tveimur bræðrum sem skipuleggja eiturlyfasmygl til Íslands og fá unga pólska stúlku til að gerast burðardýr. Elísabet Inga, útsendari Nútímans, leit við á tökustað og fékk að skyggnast á bakvið tjöldin. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.
Elísabet hitti meðal annars Gísla Örn Garðarsson, sem fer með eitt af aðalhlutverkunum í myndinni, og spurði út í undirbúninginni fyrir hlutverkið. „Ég tek úr mér hjartað, geri það svart og set það aftur inn,“ sagði Gísli Örn.