Íslenski tónlistarmaðurinn Gaukur Gréturson, betur þekktur sem GKR, sendi í dag frá sér nýtt myndband við lagið SKROLLA. Lagið er það nýjasta úr smiðju rapparans sem sló í gegn með lögum á borð við Morgunmatur og Tala um á sínum tíma.
Sjá einnig:Allir eru að tala um GKR, ferskasta myndband sem þú horfir á í dag
Álfheiður Marta og Magnús Andersen leikstýra myndbandinu. Í tilkynningu frá framleiðendum myndbandsins segir að þau hafi skapað fallegt og tilfinningaríkt myndband sem vekur upp fortíðarþrá hjá áhorfendum.
Stórfyrirtækið COMPANY 3 í New York til að sjá um litaleiðréttingu á myndbandinu. Joseph Bicknell sá um litaleiðréttinguna en hann hefur litaleiðrétt tónlistarmyndbönd fyrir ASAP Rocky og auglýsingar fyrir Nike og Mercedes.