„Heyrðu, Guð! Guðni Már, það er að koma jarðskjálfti bara.“
Þetta sagði hlustandi sem hringdi inn í Næturvaktina á Rás 2 í gær þegar snarpur jarðskjálfti varð við Norðurland upp úr miðnætti. Hlustaðu á kostulegt brot úr þættinum hér fyrir ofan.
Hlustandinn, eldhress kona, lýsti skjálftanum fyrir Guðna Má, sem fannst ansi merkilegt að fá lýsinguna svona beint í æði í beinni útsendingu.