Helgin er búin, það var kalt í morgun og dagurinn verður erfiður. Gott og vel. Gerum gott úr þessu. Í myndbandinu fyrir ofan má finna uppskrift að unaðslegum kjúklingi sem er svo einfaldur að það væri skrýtið að elda hann ekki.
Bara tamari-sósa og beint í ofninn með hann. Verði ykkur að góðu!
Nútíminn gerði á dögunum samstarfssamning við framleiðslufyrirtækið Skot um framleiðslu á myndböndum. Þetta er því aðeins byrjunin. Á næstunni birtum við miklu fleiri myndbönd um hvað sem er. Við erum rétt að byrja — fylgist með!