Ásta Guðrún Helgadóttir, þingkona og þingflokksformaður Pírata, sagðist í Silfrinu á sunnudag ekki sjá fram á að geta keypt sér íbúð á næstunni þrátt fyrir að fá 800 þúsund krónur á mánuði útborgaðar eftir skatt. Ummælin vöktu gríðarlega athygli.
Sjá einnig: Ásta Guðrún fær 800 þúsund krónur í laun eftir skatt, sér samt ekki fram á að geta keypt íbúð á næstunni
Elísabet Inga, útsendari Nútímans, vildi komast til botns í málinu og hitti Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóra Meniga, og spurði einfaldlega hvernig manneskja sem fær 800 þúsund krónur útborgaðar eftir skatt ætti að fara að þessu. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.