Hófí er sætasta tíkin í bænum um þessar mundir. Hún er St. Bernard hvolpur í eigu Berglindar Festival og Lilju Lífar. Þá tekur Kári, sonur Berglindar, virkan þátt í uppeldinu.
Hófí er svo sæt að fólk getur ekki hamið sig þegar það sér hana og verður að fá að klappa henni. Elísabet Inga, útsendari Nútímans, ákvað því að prófa að senda fjölskylduna niður Laugaveginn og athuga hversu margir myndu klappa Hófí. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.
Til að telja hversu margir klappa Hófí notuðum við Klappteljarann™. Hann er háþróaður.