Inga Lind og þjálfarinn Gurrý rifust í vigtuninni í Biggest Loser-þætti kvöldsins á SkjáEinum. Sjáðu rifrildið í spilaranum hér fyrir ofan en brotið er birt með leyfi frá SkjáEinum.
Rifrildið kom þannig til að Gurrý ákvað að beita herkænsku við þjálfun liðs síns í þáttunum en ákvörðunin var umdeild. Hún ætlaði að styrkja lið sitt líkamlega til að undirbúa það fyrir átök næstu vikna.
Gurrý lýsti yfir í þættinum að hún ætlaði að tapa vigtuninni viljandi en hún átti inni svokallaða björgun, þannig að enginn úr hennar liði þurfti að fara heim.
„Mér er alveg skítsama þó framleiðendur þáttanna séu eitthvað pirraðir yfir því að það séu ekki stórar tölur hérna,“ sagði Gurrý þegar Inga Lind saumaði að henni.
Þjálfararnir beita mismunandi aðferðum við þjálfun liða sinna og ljóst er að spennan í þáttunum er að magnast.