Hinn sextán ára gamli, Kári Egilsson spilaði á aðventugleði Rásar 2 í dag. Kári er mikill snillingur við flygilinn en hann flutti jólalagið The Christmas Song frá árinu 1945. Sjáðu myndband hér.
Kári, sem er sonur Egils Helgasonar, fjölmiðlamanns kom fram í Vikunni með Gísla Marteini á RÚV árið 2017 og sló hreinlega í gegn. Hæfileikaríkur piltur.