Annar þátturinn af Ligeglad var sýndur á RÚV á sunnudaginn. Þrátt fyrir að þjóðin hafi enn verið í sjokki eftir afhjúpun Kastljóss fyrr um kvöldið settist rúmlega fjórðungur þjóðarinnar niður og horfði á þáttinn.
Eitt atriði í þættinum vakti meiri athygli en önnur og hafði mikil áhrif á framvinduna. Helgi Björns og Viggi voru í sturtu í sundlaug á ferðalagi sínu þegar ungur drengur mætir á svæðið.
Það sem gerist næst virðist vera byggt á tísti leikarans Þóris Sæmundssonar, sem vakti gríðarlega athygli í fyrra og var eflaust eitt útbreiddasta tíst landsins. Atburðarásin var nánast alveg eins:
Sund.
4 ára stelpa laumar sér aftur fyrir mig, ég í skápnum, sný mér viđ.
Beisikly cockslappa hana í andlitiđ.
Pabbinn & ég segjum ekkert.— Bjarni H. Kreutzhage (@ThorirSaem) April 10, 2015
Horfðu á hvernig Ligeglad túlkaði uppákomuna í spilaranum hér fyrir ofan.