Auglýsing

Margrét Maack kennir brjóstadúskasnúning: „Upp með hendurnar og dúa rólega“

Margrét Erla Maack kemur fram ásamt fríðu föruneyti á tveimur burlesque-sýningum 26. og 27. október næstkomandi. 20 ára aldurstakmark er á sýningarnar sem eru sexí, skrýtnar og fyndnar. Steinar Ingi, útsendari Nútímans, kynnti sér málið og fékk óvænta kennslu í brjóstadúskasnúningi. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

„Kabaret er yfirheiti yfir skemmtun fyrir fullorðna með litlum, skemmtilegum grínatriðum,“ sagði Margrét í myndbandinu og útskýrði svo hugtakið nánar. Hún bað svo Steinar um að fara úr skyrtunni og byrjaði að gera brjóstadúskana tilbúna. Ótrúlegir hlutir áttu sér svo stað.

Það er ljóst að Steinar þarf að æfa sig betur ætli hann að eiga framtíð í kabaretbransanum. Margrét er hins vegar fagmennskan uppmáluð og kemur fram á sýningunum í október ásamt La Lupe, Ungfrú Hringaná, M Dame Cuchifrita, Edie Nightcrawler, Sophia Disgrace og Luminous Pariah.

Smelltu hér til að kynna þér sýninguna og kaupa miða.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing