Skoski tennisleikarinn Andy Murray leiðrétti blaðamann á blaðamannafundi eftir tap gegn Bandaríkjamanninum Sam Querrey í 8-manna úrslitum Wimbledon-mótsins í gær. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.
Leiðréttingin hefur vakið mikla athygli á internetinu. Blaðamaðurinn hóf spurningu sína á því að segja að bandarískur spilari hefði ekki komist í úrslit á risamóti í tennis frá árinu 2009. Murray leiðrétti hann snarlega: „Fyrsti karlinn.“
Og mamma var sátt!
That's my boy. ❤️ https://t.co/ldZUQ2wbZj
— judy murray (@JudyMurray) July 12, 2017